Fléttuhandbókin

Lichen Flora of Iceland

Flannaskóf

Diagnostic description: 

Þalið stórt, oft 15-25 sm í þvermál, bleðlar ávalir, 3-6 sm breiðir, jaðarinn uppbrettur. Efra borð er fagurgrænt í vætu en grágrænt eða grábrúnt í þurrki, alsett dökkum, blágrænum eða svörtum, eins til tveggja mm stórum hnyðlum sem eru dreifðar sem dökkir dílar um allt efra borð skófarinnar. Yfirborð skófarinnar er annars slétt, jafnvel ofurlítið gljáandi, með örstuttri loðnu út við jaðarinn. Neðra borð er ljósbrúnt meðfram jaðrinum, dökk brúnt eða nær svart nær miðju, engar skýrar æðar en stundum með ljósa eða gráleita bletti við útjaðar dökka miðsvæðisins. Rætlingar lítið áberandi, vantar oft á stórum svæðum neðra borðs. Askhirzlur eru stórar, 7-18 mm í þvermál, rauðbrúnar að ofan, með barkarlag á neðra borði. Askgróin eru glær, 50-70 µm á lengd og 4-5 µm breið, gerð af fjórum frumum, um það bil tífalt lengri en breið. Askþekjan er brún,  askbeðurinn glær eða fölbrúnn, 100-140 µm þykkur, undirþekjan glær eða lítið eitt brúnleit. 

Look alikes: 

Flannaskófin er mjög lík dílaskóf, þó oft heldur stærri en þekkist bezt á neðra borðinu sem er að mestu dökkt og æðalaust.

Molecular biology: 

Þalsvörun: K+ gulbrún, C- eða C+ ljósbleik, KC-, P-.
Innihald: Tenuiorin,  methylgyrófórat og triterpensambönd.

Distribution: 

Hún má heita algeng um allt land, þó fátíðari en dílaskóf. Hún þekkist bezt frá dílaskóf á aldökku, æðalausu neðra borði.

Habitat: 

Flannaskófin vex yfir mosa á grónum jarðvegi í mólendi, á engjum og í fjallshlíðum upp að 1000 m hæð.

Scratchpads developed and conceived by (alphabetical): Ed Baker, Katherine Bouton Alice Heaton Dimitris Koureas, Laurence Livermore, Dave Roberts, Simon Rycroft, Ben Scott, Vince Smith