Allstórvaxin, blaðkennd skóf (15-20 sm), bleðlar 1-3,5 sm breiðir, jaðrar útréttir eða uppbrettir. Efra borðið er grátt, grábrúnt eða gulbrúnt í þurrki, blágrænt í vætu, án loðnu en allt meir eða minna smáhrufótt, stundum sléttara við miðju. Neðra borðið er ljóst utan til en dekkra inn við miðju, æðar flatar, skarpar og þéttriðnar, ljós brúnar utan til, rætlingar dökk brúnir og brúskkenndir, í toppum sem mynda dökka díla með jöðrunum, en verða nær samfelldir nær miðju. Askhirzlur eru söðullaga, brúnar, 3-6 mm í þvermál. Askgróin eru átta í aski, aflöng, fjór- til sexhólfa, glær, 55-80 x 3-5 µm að stærð. Askþekjan er rauðbrún, askbeður 70-110 µm þykkur, glær, undirþekja glær eða gulbrúnleit.
Peltigera lyngei líkist þéluskóf en hefur æðalaust neðra borð og ekki eins brúskkennda rætlinga. Hún hefur aðeins fundizt á þrem stöðum á hálendinu og hátt til fjalla.
Þalsvörun: K- eða K+ gulbrún, C- eða C+ bleikrauð, KC-, P-.
Innihald: Tenuiorin, methylgyrófórat, gyrofórinsýra, peltidactylin, dolychorrhizin, zeorín og triterpensambönd.
Þéluskófin er fremur sjaldgæf á Íslandi, ófundin á Suðurlandi, flestir fundarstaðir á Vestfjörðum og Norðurlandi frá láglendi upp í 600 m hæð. Hæst er þéluskófin fundin í Hveradölum í Kerlingafjöllum, þar upp fyrir 1000 m.
Þéluskófin vex á grónum jarðvegi í lyngmóum.
